miðvikudagur, febrúar 28, 2007

Sumir hlutir flækjast minna fyrir manni en aðrir. Það tók okkur einn og hálfan klukkutíma að kaupa íbúð og fjóra daga að selja hina. Geri aðrir betur. Mestur tími fer sennilega í að flytja.

miðvikudagur, febrúar 21, 2007

Ég bætti smá í tenglana hjá mér. Þetta er aðal bloggsíðan í dag með tveimur ritstjórum sem berjast við ísbirni sem reyna að stela nestinu þeirra. 78norður gjörið svo vel

sunnudagur, febrúar 18, 2007


Þessi frétt birtist á vef Víkurfrétta þann 13.febrúar." Boranir Hitaveitu Suðurnesja í Trölladyngju hafa ekki gefið þann árangur sem vænst var og hafa nú verið settar á bið. Hitaveitan íhugar tilraunaboranir í Krýsuvík á meðan vísindamenn átta sig betur á stöðunni í Trölladyngju, að sögn Júlíusar Jónssonar, forstjóra HS.Boranir hafa leitt í ljós að nægur jarðhiti er til staðar í Trölladyngju en kaldara innstreymi í holurnar ofar í holunum koma í veg fyrir að hægt sé að nýta þær. Meira fjármagni verður því ekki eytt í frekari boranir þar á meðan vísindamenn átta sig nánar á stöðunni.Þrjú svæði í Krýsuvík koma til greina til tilraunborana og er verið að skoða það hvar vænlegast sé að byrja, að sögn Júlíusar. Þegar það liggur fyrir verði sótt um öll tilskilin leyfi."


Myndin að ofan er af hveraleir sem Hitaveita Suðurnesja lét moka ofan af hverasvæðinu í Sogunum og sturta norðan við svæðið. Nú er spurning hvort leirnum verður mokað aftur upp í brekku og vegir fjarlægðir eða bara sett keðja fyrir veginn og hann merktur sem einkavegur?

laugardagur, febrúar 17, 2007


Hér verður borað næst. Þetta er Seltún í Krýsuvík. Um að gera að drífa í þessu fyrst holurnar í Trölladyngju virkuðu ekki. Hvað fæst mikil orka úr handritunum ef þau verða brennd í sorpeyðingastöð suðurnesja (þið vitið, þessi sem danirnir sendu okkur)? þar er virkjun sem gengur fyrir rusli, já eða bara því sem brennur.

miðvikudagur, febrúar 07, 2007


mánudagur, febrúar 05, 2007


Ég fór á stúfana í dag til að finna mér vettlinga. Þar sem nú er vetur á norðurslóðum og Færeyjar (steinninn) nokkuð norðarlega þá er soldið kalt að labba þannig að maður verður að vera vel klæddur og með góða vettlinga. Mig langaði ekki í enn eina Thinsulate fingravettlinga heldur langaði mig í alvöru lopavettlinga, helst belgvettlinga með tveimur þumlum.

Ég lagði því leið mína í handverkshúsið hér í Fuglafirði en þar má kaupa heimilisiðnað og allskyns handverk. Ég skaust þarna inn um leið og ég fór í búðina til að kaupa eitthvað með kaffinu handa okkur. Ég var því í vinnufötunum og kannski ekki sá best lyktandi í plássinu enda hafa fiskimjölsverksmiðjur sjadan verið taldar vellyktandi.

Ég steig inn í handverkshúsið og bauð tveimur konum sem þar voru góðan dag og spurði fyrst á Íslensku hvort þær ættu til vettlinga handa mér. Kona milli 70 og 80 ára spratt á fætur og pírði augun að mér og hváði. Ég endurtók spurninguna en nú með smá Færeysku ívafi, átt þú vöttar handa mér, þá lifnaði yfir kellu og hún spurði hvort ég væri Íslendingur, ég gat víst ekki neitað því. Hún brunaði að einhverju spjaldi sem var fullt af vettlingum en hin konan þaut eitthvað á bakvið til að leita að mannfólksvöttum (karlmannsvettlingar) eftir smá leit fundust þessir fínu stinguvettlingar handa mér. Ég valdi mér hvíta vettlinga með einhverju óræðu mynstri og sagðist ætla að fá þessa.

Meðan ég taldi krónurnar upp úr veskinu stóðu báðar konurnar við afgreiðsluborðið. Sú eldri spurði mig hvað maður frá Íslandi væri að gera í Fuglafirði. Ég svaraði að bragði að ég væri að vinna hjá Havsbrún. Gamla virtist mjög hissa á því og augun stækkuðu ótæpilega. Sú yngri virtist heldur sjóaðari og spurði þá gömlu hvort hún þyfti að spyrja svona spurninga. Finnur þú ekki lyktina af honum? Sú gamla kom niður á jörðina og játaði að lyktin væri ekki svo góð.

Ég fékk vettlingana og gekk alsæll út. En bj óboj þarf maður að fara að flýta páskabaðinu.

Sem minnir mig á að það eru langir páskar í ár, þeir liggja nefnilega að helgi í þetta sinn.

sunnudagur, febrúar 04, 2007


Ég er með vöðvabólgu upp í heila eftir að hafa síðustu kvöld unnið í myndunum sem hafa safnast upp hjá mér síðan í sumar. Sumar þessara mynda voru ekki nógu góðar til að fara á netið og því þurfti aðeins að pota í þær. Ég á enn eftir að ákveða hvað ég geri við þær þ.e hvort ég set þær á netið eða prenta út og hengi upp á klósettinu.

Hér er ein sem ég tók í Fuglafirði í sumar af aliönd sem elti mig þegar ég fékk mér göngutúr um fjöruna.

laugardagur, febrúar 03, 2007


Þessi fugl skildi hvorki upp né niður þegar ég rakst á hann í sumar og ég held hann hafi ekki heldur átt orð. Enda Færeyskur í aðra ættina.