sunnudagur, febrúar 04, 2007


Ég er með vöðvabólgu upp í heila eftir að hafa síðustu kvöld unnið í myndunum sem hafa safnast upp hjá mér síðan í sumar. Sumar þessara mynda voru ekki nógu góðar til að fara á netið og því þurfti aðeins að pota í þær. Ég á enn eftir að ákveða hvað ég geri við þær þ.e hvort ég set þær á netið eða prenta út og hengi upp á klósettinu.

Hér er ein sem ég tók í Fuglafirði í sumar af aliönd sem elti mig þegar ég fékk mér göngutúr um fjöruna.