föstudagur, júlí 13, 2007

Símtalið sem við höfum beðið eftir kom klukkan 18 í gær. Við eigum núna dóttur í Hubei héraði Kína, hún er fædd þann 24. mars 2006 og heitir Xue Fu Yun. Við reiknum með að fara út í byrjun September, það er ekki svo langt þangað til því það verður væntanlega nóg að gera við að undirbúa komu skvísunnar.